Færslur: 2012 Febrúar

19.02.2012 19:33

eins og vanalega

Eins og vanalega hverfur tíminn frá manni og maður gleymir hversu dugleg ég var að blogga einu sinni .... en eins og ég hef sagt allt mitt líf, tímarnir breytast og mennirnir með... og þess vegna trúi ég ávallt á að gefa fólki annan sjens.... en auðvitað hefur það brennt mann einnig... en þetta blogg er nú ekkert svoleiðis.


Salomon heldur áfram að vekja gleði hér á heimilinu, hann er svo sem búin að velja handa okkur þau föt sem hann telur ekki henta eða passa okkur og rífa þau í sundur.... hann hefur ekki enn fengið þessa skódellu og vona ég að hún komi ekki.


Spóla er reglulega að koma Salomoni í skilning um að það er hún sem ræður.... Enda er hún 6 árum eldri en hann. og vefur manni um fingur sér þessi dúlla.


Veturinn hefur alveg komið hér eins og víða um landið, held að veðurguðirnir hafi allt í einu hlustað þegar ég bað um alvöru vetur þar sem það kemur aldrei alvöru vetur í Bretlandinu....


Veturinn gefur manni margar fallegar minningar,  Þegar veðrið er svona fallegt eftir snjóstorm er ekki annað hægt en að brosa og skella sér út með myndavélina.


Eitt því sem fylgir svona snjó er að finna tíma og búa til snjóhús. þetta snjóhús varð það stórt að við Rebekka komumst einnig fyrir sem og hundarnir og enn var til pláss.... en svo kom hlákan enn eina ferðina og eyðilagði það auðvitað.


skellti mér á leirnámskeið síðustu helgi og var mjög skemmtilegt, fer síðan á framhald á næstu helgi... alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.

Ég þarf nú eiginlega að finna mér leið til að koma öllu fyrir í daginn sem ég þarf að gera, tíminn hreinlega hverfur frá manni, en það er líka bara gaman. Er að fara að vinna að næstu skilaverkefnum, nú á að byrja fyrr en síðast. alltaf að reya að læra af mistökunum... sjáum hvernig það gengur....


Nú er bara að halda áfram..... byrja nýja viku sem er alveg örugglega eins skemmtileg eins og síðasta.

reyni að blogga meira á næstunni.
  • 1