01.01.2012 17:20
Gleðilegt nýtt ár
Sá tími komin, þar sem smákökubaksturinn byrjar, jólagjafastressið og óskin um íslensk jól verður að veruleika. Já, það er komin sá tími ársins að skrifa jólabréfið sem hefur verið hefð hjá okkur Gunna síðan 2008 og ekkert á dagskránni að hætta því. Enda er skemmtilegt að líta yfir líðandi ár og sjá hvað maður hefur verið að bralla en minnisleysið er ávallt mætt á staðinn þegar þetta byrjar svo það er örugglega eitthvað sem við erum að gleyma að segja frá.
Árið 2011 hefur hreinlega flogið frá okkur enda hefur nóg verið að gera hjá okkur. Við áttum bresk jól 2010 enn eina ferðina og í Oxford, við ákváðum að strengja áramótaheiti - vera á Íslandi næstu jól og áramót... viti menn getum staðið við það heit.... en við munum eiga örugglega yndisleg jól í Keflavík og æðisleg áramót fyrir vestan í sveitinni. Okkur er búið að hlakka mikið til að fá íslensk jól og áramót en þegar maður er búin að vera 3 jól frá öllum þá verður maður bara eins og krakkarnir, farin að hlakka til að vera í faðmi fjölskyldunnar.
En byrjum nú á árinu 2011 enda þarf maður nú að klára bréfið til að það komist til ykkar allavega fyrir áramótin
Árið 2011 byrjaði nú bara mjög venjulega, svona fyrir okkur, með þessum venjulega rúsíbana eins og vanalega. Sem sagt þá útskrifaðist Gunni frá háskólanum í Derby og fengum við heimsókn frá klaknum í tilefni þess en mamma hans Gunna, hún Erla (Tengdó) og Valur kíktu til okkar í viku. Þetta var stór áfangi fyrir okkur enda fórum við til Bretlands til að Gunni myndi geta menntað sig.
Rússíbani ársins byrjaði í janúar þegar Harpa sótti um hjá Reykhólahrepp sem ferðamálafulltrúi og var það samþykkt að ráða hana frá 1. Júní 2011 en hún byrjaði auðvitað strax að vinna að ansi mörgum verkefnum og fann það hvernig var að vera í háskóla og vinna með, eiginlega gekk það ótrúlega vel og kláraði fyrsta árið með B+ í meðaleinkunn. Vorum mjög stolt af því hversu allt gekk vel fyrri hluta ársins.
Vorið kom og Harpa komin með hugann til Íslands og flaug heim í sveitina til að vera við sauðburð og byrja í vinnunni sinni næsta árið. Gunni varð enn eina ferðina eftir á Englandi þar sem hann var að klára masterinn í hönnun keppnisvéla en hann skilaði inn síðasta verkefninu í lok ágúst. Hann lét það ekki duga og náði að landa vinnu hjá Cosworth rétt hjá Cambridge um mitt sumarið. Og þá var flutt enn eina ferðina en vegna anna á Íslandi varð Gunni að flytja einn í lítin bæ rétt hjá vinnunni.
Harpa vann við upplýsingamiðstöðina, á Báta- og hlunnindasýningunni og við viðburði sem áttu sér staðar yfir sumarið í sveitinni, frítímanum eyddi hún með hestunum Litla Kall og Erni. Var nóg að gera hjá okkur báðum enda var tíminn nýttur í vinnu og verkefni þar sem við vorum í sitthvoru landinu allt sumarið. Skemmtum okkur mjög vel við það að hafa nóg fyrir stafni. En við ákváðum að hvetja hvort annað í að láta drauma okkar verða að veruleika og er það lífsmottóið okkar að lifa lífinu.
Haustið kom með sveitaverkefnum en Harpa fékk meiri tíma til að hjálpa til við sveitastörfin og eftir 4 mánaða aðskilnað þá hittumst við Gunni aftur í aðal smalamennskunum á Stað þar sem margt var um manninn og kindur.
Í nóvember fengum við aðeins meiri tíma saman en þá fór Harpa til Bretlands í nokkrar vikur. Vinafólk okkar Úlla og Garðar komu til Bretlands fyrstu vikuna og voru þá allar jólagjafir verslaðar og Gunni fékk alvöru mat á hverju kvöldi til tilbreytingar enda búin að vera mjög svo upptekin í verkefnum áður en við komum.
Ekkert róaðist hjá okkur eftir að Harpa fór aftur til Íslands, Gunni vann í mörgum verkefnum til að ná að klára þau áður en hann kæmi til Íslands í jólafrí. Harpa var beðin að taka þátt í útvarpinu Lífæðin sem er vestfirskt menningarútvarp sem verður núna í loftinu á Vestfjörðum og höfuðborgarsvæðinu og á netinu í mánuð eða til 7. Jan 2012. Auðvitað sagði hún ekki nei við þessu skemmtilegta verkefni og er nú alla virka daga að skemmta landanum milli 11-13 og skemmtir sér konunlega við þetta.
Árið 2011 er búið að vera meira draumaárið okkar, erum búin að vera í skemmtilegum rússíbana en auðvitað hafa verið vandamál á leiðinni en það er bara til að gera mann sterkari. Núna um jólin höldum við Gunni upp á það að hafa verið saman í 7 ár og okkur finnst frábært að geta haldið upp á það á Íslandi en eins og vanalega þá eru sterkar líkur fyrir því að við gleymum því fyrr en nokkrum dögum seinna. Svona erum við nú, Gunni búin að smita Hörpu af gleymskunni en það er í hinu fínasta.
Við viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsæld á komandi ári. Vonum að árið 2012 verði ykkur jafn farsælt og það lítur fyrir okkar. Við hlökkum til að takast á við öll þau skemmtilegu verkefni sem koma árið 2012 en það sem við vitum að við verðum líklega að gera á komandi ári er; flytja enn eina ferðina, búa aftur saman eftir 16 mánaða aðskilnað, ferðast og hafa nóg að gera í skemmtilegum verkefnum.
